gisil the zhisil

Gísli - reður skemmtilegir hlutir að gerast!!!

28.11.2007 23:50:04 / gislibj

Nú vantar bara Snjó!!!!

Ég var að komast að því að það getur haft mikla kosti og galla að vinna í búð... t.d. þá var semsagt allur snjóbrettafatnaðurinn að koma og í gær var ég að vinna í að koma honum fyrir í búðinni. Pældi sérstaklega mikið í snjóbrettum og fatnaði þann daginn, svo mikið að ég tók frá jakka ( http://store.nexternal.com/shared/StoreFront/default.asp?CS=cabb06&StoreType=BtoC&Count1=779735743&Count2=696876168&ProductID=256&Target=products.asptil ) að kaupa um mánaðamótin og svo splæsti ég í eina ferð til Austurríkis. Fer 19. janúar í heila viku með um 100 manns tengdu Björgunarsveitinni.

Það er svo erfitt að vinna við það sem maður hefur áhuga á!!!
Maður hefur bara ekkert tíma til að vinna, maður bara mátar og mátar og skoðar og skoðar og lætur sig dreyma um að eiga allt dótið og fatnaðinn ogogogogogog........

Nú er það bara spurning hvort að þetta séu kostir eða gallar eða bara bæði!!!

Það sem er á döfinni er nokkuð skemmtilegt og alveg tilhlökkunarvert t.d. fer ég í klifurhúsið á morgun, Útborgað á föstudag, Nikedjamm á laugardag, Ísklifurnámskeið 15. des, Flugeldasölu undirbúningur í des, Jólin verða bara þegar Jólin verða, sama gildir um áramótin, allskonar Björgunarsveita tengt í jan, og svo SKÍÐAFERÐIN 19.jan. Svo er náttúrulega alveg fullt af stöffi sem er bara ekki þess virði að nefna en þetta ætti að duga í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 23:37:17 / gislibj

busy

Ég er á lífi!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 23:59:07 / gislibj

Jagúar

Ég keypti mér nýjustu plötu jagúar í dag og verð bara að tjá heiminum að mér finnst hún bara alveg drullu góð. Þori meira að segja að segja að hún sé sú besta sem hefur komið frá þeim félögum.  Þessi plata inniheldur ótrúlega flottan trommuleik sem var ekki sterkasta hlið þeirra á fyrstu þremur plötunum. Allaveega þá mæli ég með henni!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:31:02 / gislibj

Nýtt

Ég held að ég nenni bara að blogga þegar gerist eitthvað nýtt í lífi mínu. Það nýja sem er að gerast um þessar mundir að ég er byrjaður í björgunarsveit, semsagt Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Ákvað að skella mér loksins af því að ég sá fram á að það yrði ekkert að gerast hjá mér í vetur annað en þetta venjulega eins og vinna, sofa og éta. Tel ég þetta vera góða tilbreytingu.

Frá því síðast er það að frétta að ég er enn hættur að reykja...Toppið það hahhh.... 3 mánuðir og 17 dagar. Náði að koma mér í ágætis form í sumar... Ég kann semsagt að hlaupa í meira en 10 mínutur(eitthvað sem ég bara vissi ekki). Fór á klárlega bestu tónleika lífs míns í sumar, Lokakvöld Djasshátíðar Reykjavíkur, þar léku Sammi Nammi og Bigband ásamt Jimi Tenor og á eftir þeim Afrobeat Antibalas. Svo man ég nú ekki eftir neinu sérstöku í viðbót á þennan lista.

Ég eyddi helginni núna uppí bláfjöllum á námskeiði að reyna að rata. Lærði á áttavita í 4 skipti á lífstíðinni. Veðrið var nú ekki alveg upp það besta á laugardeginum því það var bara mega snjóbylur og skafrenningur... þá hlakkaði í Gísla :) Skemmti mér allavega konunglega bæði í snjóleikjum og rötunaræfingum undir stjörnubjörtum himni þegar veðrið hafði batnað.

Er núna að tölvunördast í augnablikinu en er annars að lesa snilldar bók sem heitir Leyndarmálið eða á útlensku The Secret, mæli með henni, fær mann til að hugsa hvað maður vill fá út úr lífinu og síðan líka hvernig maður fer að því.... áhugavert semsagt. Er einnig að hlusta á geislaplötuna Emergency on Planet Earth með hljómsveitinni Jamiroquai og áður en ég byrjaði að nördast var ég að leika mér að spela á kassagítarinn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 22:57:37 / gislibj

Kominn heim

Já svona er þetta nú, "what goes up must come down"

Þá er ég allavega kominn heim í einhvern tíma. Ég ætla að reyna að staldra við meira en ár en miðað við að ég er ég, þá held ég að þetta sé svona fifty fifty dæmi!!! þetta verður bara að koma í ljós seinna.

Þið tókuð eftir ad ég stóð alveg undir síðustu bloggfærslu, ég er alveg hund-latur bloggari og er varla að nenna þessu en ég ætla að þrauka.

Í ferðinn um Suðaustur Asiu þá gerðist svolítið merkilegt. Ég fékk vitrun..... Ég sá ljósið...... Ég er ........ Hættur að reykja!!!!!! og svo ákvað ég einnig að það væri mjög sniðugt líka að byrja hreyfa sig. Byrjaði á 5,3 km skokki í gær, 2, 5 tímum í world class í morgun og svo er planið að fara aftur í fyrramálið. Fyrst ég var byrjaður að setja mér einhverjar reglur þá ákvað ég líka að ég ætti að byrja borða holt og fengi bara að borða nammi einn dag í viku. Þetta er svolítið stór pakki en ég held bara að ég geti gert þetta, þetta er alveg svona allt eða ekkert dæmi.

Ég er ætla að reyna að klára þenna framhaldsskóla djöful í vetur og þann næsta en ég býst við að það fari allt eftir áhuga eða meira eins og áhugaleysi og svo auðvitað F.U.H. Vírusnum sem er betur þekktur undir nafninu: Ferðast Um Heiminn veiran. Ég er búinna sækja um í F.Á. á félagsfræðibraut og ég vona að það verði temmilega bærilegt.

Ég er ekki ennþá byrjaður að vinna, er búinn að vera á landinu í 4 daga og er byrjaður að finna fyrir smá eirðarleysi, held mér busy með með líkamsræktarbulli og síðan að sjálfsögðu chill á prikinu með latte í annari og moggann í hinni.

Djöfull kostar bæðevei að láta skifta um pustkerfi á bílum. Usssss, ég borgaði 24 þúsund kalla fyrir ekki einu sinna heilt pústkerfi. Kallinn sagði þegar hann var búinn að laga mesta prumpið að eftir nokkra daga þyrfti ég að skifta um pústgreinina(eins og ég hafi hugmynd hvað það er) semsagt eftir viku kemur aftur prump, bara annarstaðar og ég sit eftir TUTTUGUOGFJÖGURÞÚSUNDUM fátækari.

Djöfullsins skíta veður er búið að vera síðan ég kom heim, annað usssss. Ég saknaði í alvöru roksins hérna heima þegar ég var í Thailandi í 40 stiga hita og logni en núna sé ég og veit að maður verður að passa sig hvers maður óskar sér. Ég er allaveega að mótmæla þessu og hef því verið í stuttbuxum 3 af 4 dögum sem ég hef verið heima. "Vér mótmælum allir"

bæbæ þangað til næst

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 08:55:26 / gislibj

Leti

Eins og thid hafid kannski tekid eftir tha er eg mjog latur einstaklingur sem hefur minnstu longun til ad hanga inni i svona hita og skrifa inn a bloggsidur. Hins vegar ef thid viljid vita hvad er ad gerast hja mer og Roggu her i sudaustur asiu ttha maeli eg med thvi ad thid skodid sidunna hennar Roggu frekar en mina thvi ad hun hefur adeins meiri longun til ad skrifa inn a bloggsidur i miklum hita. Alla vega tha er hun linkud herna nedar a sidunni. Eg er ekki ad segja ad eg se haettur ad skrifa heldur ad segja ad bloggid verdi kannski ekki oft uppfaert anaestunni en thetta kemur nu allt i ljos.

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 07:04:48 / gislibj

Eg er i thailandi NaNaNa bubu

Hallo tha er madur nu loksins kominn til thailands og thad hefur gengid ad mestu leit vel fyrir utan ein sameiginleg mistok hja mer og Roggu. Vid thurftum semsagt ad breyta midunum okkar til thess ad geta breytt theim aftur vegna svona landvistaleyfiskjaftaedi en thad reddast alveg. Svo kom thad lika upp ad passinn hennar Roggu gildir ekki nogu lengi til ad I raun getad ferdast um asiuna en vid forum bara i thyska sendiradid og reynum ad framlengja thvi….

En thetta hefur gengid alveg storafallalaust hingad til. Flugin voru oll a rettum tima og allar rutur og allt thannig. Thad var aldrei neitt stress I gangi, eg held meira ad segja  ad Ragga stressist meira vid ad taka straeto upp i breidholt heldur en ad fljuga til Bangkok. Nuna erum vid a gistiheimili sem heitir Bella Bella House og herbergin eru eins og fangaklefar en thad er nu bara kosiJ Vid aetlum semsagt ad slappa adeins af I Bangkok I nokkra daga og na flugthreitunni ur okkur en eftir thad er ferdinni heitid i  thjodgard I nordaustur thailandi og thadan til Laos.

 

Bless I Bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 00:47:00 / gislibj

En natt i byen midt i Norge

Allright!!! Dette skjedde på Toppentreff i Mosjøen, lørdag kveld fra klokken tre til fem over fire. Kl 3:00. Lilletorget stenger. 3:15 Espen står utefor og lurer på hvor det ble av alle sammen. Plutselig dukker det opp to lokale kvinner i beste overgangsalder. De spør på høffelig Mosjø-dialekt: "Har du en kukk?" Espen trekker forsiktig og blygt på smilebåndet, og snur seg bort. Mosjøen dame: "Æ e så kåt!" Hvorpå hun tar et godt tak i Espens edlere deler. Espen, lettere sjokkskadet og litt kvalm, ringer i stigende panikk til Gísli, som fremdeles befinner seg inne på sjenkestedet sammen med Karoline og Vibeke, i et håp om å snarlig å forlate åstedet og finne en taxi hjem. De tre sistnevnte har imidlertid tenkt seg på nachspiel, men blir pent bedt om å forlate Lilletorget. Vel ute på gaten forsvinner Karoline og Vibeke raskt for å krasje et 50-årslag. Gísli og Espen blir vitne til en slosskamp mellom 10 velvokste Mosjøkarer, og klarer å forhindre Martin, en én meter høy lokal helt fra å prøve å banke hele slagsmålet alene. Plutselig er det stille igjen, og to fulle menn tar en pirattaxi til Esso for litt nattmat og å roe litt ned. Burger er godt, og det er det flere som synes.. Blant annet bartenderen fra Lilletorget, som spør om vi kjenner Julie, for han har funnet undertøyet hennes... Klokken 4:05.. Raver hjem med burger i magen og latter i halsen. Nok en bra kveld i denne vesle sjarmerende nordlansbyen, som aldri slutter å overraske! Dette var kun en time av treffet, men illustrerer intensivitetsnivået, så resten kan bli opp til enhver å tenke seg til. Nå om dagen er det mye chilling, kaffe, øl turisme i Oslo, og i morgen er det Toppenparty nok en gang. Vi henspeiler videre til gårsdagen. Fred ut!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 11:40:15 / gislibj

Norge

Jæjæ tha er madur nu kominn til Noregs, gaman ad segja fra thvi ad nu hef eg upplifad lengstu bid evi minnar.Thannig ernu mal med vexti ad flugin min pøssudu svona lika vel ad eg eg thurfti ad bida i 9 tima....  flaug semsagt fra keflavik til stansted klukkan 7:15 og svo for flugid til Oslo ekki fyrr en klukkan 20:30 thannig ad nu hef eg talid thrihyrningana i loftinu a stansted og held eg ad theyr seu um 15.000 talsins. Allavega thae er eg semsagt Nuna i Oslo hja vini minum Espen sem var svo agætur ad bjodast til ad hysa mig a medan eg er herna i Oslo. I kvøld førum vid til Mosjøen med næturlestinni og mun huntaka sirka 12 tima. en thar er thad allaveega engin bid, kannski bara mestmegnis svefn. Svona rett i lokin tha vill eg thakka folki sem mætti a laugardaginn, thad var otrulega gaman thad. Svo sidast en ekki sist honum Erni fyrir ad lana mer eitthvad af tonlistarsafninu sinu fyrir ferdina... eg a pottthett eftir skrifa eitthvad um helgina, reyna ad nyta netsambandid medan eg get.

 bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 20:16:23 / gislibj

Sussubía

Vááááááá hvað það er stutt þangað til ég fer út!!!!!! Fer út á þriðjudags morgunn, það er bara enginn tími. Verð bara í burtu í 3 og 1/2 mánuð..... bara  ekkert ísland..... sem verður swweeeet.  Jú jú maður á nú kannski eftir að sakna einhvers en af  því að ég er svo harður karlmaður þá á ég aldrei eftir að minnast á það aftur og ég sagði þetta aldrei....  Allavega þá er ég að fara lengja sumarið um 3 mánuði, sem líka swweeeet.

En ef einhver hefur góð pökkunarráð fyrir mig þá endilega commenta. Málið er nefnilega það að ég fer fyrst til Noregs í -10 - -20 gráðu frost og svo til Asíu þar sem 30- 40 gráðu hiti og allur sá farangur sem ég þarf að hafa verður að komast í 65 lítra bakpoka.

Góða ráð allavega vel þegin.

Svo er líka kveðjupartí á Barnum á Laugardaginn mér og Röggu til heiðurs, þannig að þið sem þekkið okkur verið velkomin en hinir bara....uhhhhh... farið á Sólon eða eitthvað

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 02:04:08 / gislibj

Frí

Já núna hangi ég enn í tövunni og kukkuna vantar 4 mínútur í 2.  Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú vitneskja að ég þarf ekki að vakna á morgun nema þegar ég er búinn að sofa nóg. Í öðru lagi, of mikið kaffi of seint en talandi um það, kaffivélin á prikinu er biluð þannig að ég neyddist til að drekka einhvern sora en allavega þá er ég enn vakandi og EKKERT þreyttur. Svona er þetta víst...... og svo að minnist nú á það að ég er eað fara út eftir 21 dag, það er nákvæmlega 3 vikur segi það og skrifa þjár vikur   hehe
UUUUUUUU
Blesss

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 23:53:18 / gislibj

úffff

Vá hvað mér leiðist ógeðslega mikið......(Sigh)

Er búinn að vera í tölvunni í allt kvöld og er að hlusta á Arctic monkeys, sem er fínt en guð minn almáttugur og jesús á himnum hvað mér hefur ekki leiðst svona mikið lengi. Það sést kannski best á því að þetta er önnur bloggfærslan í kvöld.
Kannski er bara langbest að maður fari bara að bursta og pissa og koma sér í bælið...

Fake Tales of San Francisco-Actic Monkeys er bara drullu skemmtilegt lag verð ég að segja og ekki get ég sagt að það hafi verið slæmt að hlusta á þá á Hróaskeldu í 30 stiga hita með bjór í annari og sígó í hinni.

pArtí Boogie

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 22:31:42 / gislibj

Vonbrigði

Íslendingarnir  töpuðu á móti Pólverjum. Við erum samt jöfn Frakklandi og Þýskalandi. Það verður eitthvað að fara gerast.

Var að vinna í dag, ekkert spes það....nema ágætis pítsa í kvöldmat annars ekkert spes.

Mig langar ennþá á bretti. Var næstum því búinn að geta það um daginn, fór fyrr úr vinnu og svona, kominn upp í fjall enþá nei bara rafmagnslaust í 2 tíma....  mín heppni

Styttist í ferðina, fer eftir 26 daga vííííííííííííí......

Ég á ÆPOD NANÓ....... ógó mega töff sko.....

uuuuuuuuuuu......... það var ekki meira í bili......... bæbæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 02:38:40 / gislibj

Jamm og jæja

Jæja lömbin mín nú er kominn mánuður frá því að ég skrifaði síðast, kannski kominn tími til að skrifa eitthvað nýtt. Tíminn líður hratt á gervihnattaöld og svona og þá vitaskuld gerist eitthvað á meðan. Til dæmis eru aðventan byrjuð og jólin búin, endaði allt saman bara ágætlega með skemmtilegu skaupi og 1000 tonnum af flugeldum. Ég eyddi jólunum hjá mömmu í Þorlákshöfn, áramótunum hérna heima í breiðholtinu, Erlu í vesturbænum og svo á hverfisgötunni hjá Röggu, Elínu og Evu, ekki slæmt það. Þrettándanum var nú varið í ekki meira né minna en mega partý með fjölskyldunni, skemmtilega sérstakt það hmmmm. En núna er ég bara frekar sáttur með lífið og tilveruna, snjórinn kominn og svona, hef reyndar ekki komist á bretti ennþá en ég er búinn að fara eina ferð upp í bláfjöll á gönguskíði og telemarkað smá. Það var nú aldeilis ágætur dagur. Það sem er mér efst í huga núna í augnablikinu er einmeitt þessi vetur og hversu mikið maður á eftir að geta rennt sér og að sjálfsögðu get ég ekki gleymt þessari asíu reisu minni með Röggu sem styttist allsvakalega í. Planið er orðið aðeins skýrara í dag en fyrir mánuði. Ég flýg semsagt til Noregs þann 20 febrúar og munum ég og Espen taka lest til Mosjöen þar sem við vorum einmeitt í Lýðháskóla saman, skemmtileg tilviljun....Tja. Þar verður nefnilega Reunion og ég á eftir að hitta allt liðið sem var með mér í skólanum. Síðan er ferðinni heitið til osló til að gera bara eitthvað til 5.mars því þá mun ég fljúga frá London til Bangkok 5. mars einmeitt. Þar byrjar í rauninni ferðin því í London mun ég hitta Röggu og munum við fjúga saman til Bangkok. Við vitum samt í rauninni ekkert hvert við erum að fara en það er allt í lagi...... það reddast. Nei en í alvöru talað þá munum við hafa mjög lauslegt plan um hvað við viljum gera og við erum að lesa okkur til um hvað er hægt að gera og sjá í hverju landi fyrir sig, þannig að maður sé ekki að fara missa af einhverju spennandi í 5 km fjarlægð frá sér að því maður planaði ekki neitt.

 

 



Þá er allavega Asía og Snjóbretti að taka allt plássið í hausnum á mér í augnablikinu.

 

 



Klukkan er orðin alltof margt þannig ég verð að hætta þessu og kveð í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 23:32:51 / gislibj

Stutt og laggott



Smá update!!! Ég er búinn að selja Volvo, búinn að kaupa Renault, góð kaup jájá. Er að vinna eins og brjálæðingur, er að fara kaupa miða til asiu á morgun, er mega þreyttur í fótunum "damn Puma´s" rusl, stutt í jól, keypti fyrstu jólagjöfina áðan, bláfjöll opnuð og svo lokuð, ekki góð veðurspá, mér leiðist, mér er ennþá illt í fótunum og bara bæbæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Eg kem heim
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1703 dögum